Eignaréttur

Eignaréttur

Eignaréttur

Sérfræðingar á öllum sviðum eignaréttar

Við búum yfir reynslu af því að veita ráðgjöf á sviði eignaréttar og í tengslum við hvers konar fasteignaviðskipti, allt frá kaupum, sölu og útleigu fasteigna, til ráðgjafar varðandi réttindi yfir óefnislegum eignum og náttúruauðlindum.

Mikil reynsla af viðskiptum með fasteignir o.fl.

Sérfræðingar okkar hafa umtalsverða reynslu af hvers konar viðskiptum á sviði eignaréttar, meðal annars viðskiptum með atvinnu- og íbúðarhúsnæði; iðnaðar- og landbúnaðarþróun og -uppbyggingu; fiskveiðiréttindi, veiðiréttindi, o.fl.

Ráðgjöf á svið skipulags- og byggingarréttar

Við veitum viðskiptavinum reglulega ráðgjöf á sviði skipulags- og byggingarmála. Sjá nánar verktakaréttur og ríki og sveitarfélög.

Aðstoð varðandi fjármögnun

Sérfræðingar á sviði banka- og fjármálamarkaða aðstoða viðskiptavini reglulega varðandi fjármögnunarhluta fasteignaviðskipta. Sjá nánar banka- og fjármálamarkaðir.

Aðstoð með ágreiningsmál

Sérfræðingar stofunnar á sviði málflutnings og úrlausnar ágreiningsmála aðstoða viðskiptavini og koma fram fyrir þeirra hönd í ágreiningsmálum á sviði eignaréttar, hvort sem er fyrir dómstólum, stjórnvöldum, gerðardómum eða EFTA-dómstólnum. Sjá nánar málflutningur og úrlausn ágreiningsmála.

Juris slf.

Borgartún 26,

105 Reykjavík

Sími: 580 4400

Kt. 580411-0610

vsk. nr. 107921